SuperDash er afgreiðslukerfi fyrir WooCommerce. Þar getur starfsfólk skoðað pantanir og unnið að afgreiðslu þeirra. Kerfið býður einnig upp á gjafakort og söluyfirlit.
Helstu svæði
- Pantanir: Finndu pöntun, skoðaðu upplýsingar hennar og tiltækar aðgerðir.
- Gjafakort: Leitaðu að gjafakorti og skoðaðu stöðu þess og inneign.
- Sölutölur: Skoðaðu sölu og berðu saman tímabil.
- Stillingar: Þar eru meðal annars aðgangur, greiðslur, afhendingar og dk-tenging.
Byrjaðu á pöntunum
- Veldu Pantanir í efstu valmyndinni.
- Notaðu leit eða síur til að finna pöntun.
- Opnaðu pöntunina og yfirfarðu upplýsingar um vörur, greiðanda og viðtakanda.
- Veldu aðgerð sem á við um verkefnið þitt.
Vöruskráning og vörubreytingar eru ekki meginverkefni SuperDash. Fylgdu verklagi verslunarinnar um vörustjórnun í WooCommerce eða tengdu birgðakerfi.
Aðstoð
Sendu tölvupóst á adstod@kaktus.is með lýsingu á erindinu, slóð og pöntunarnúmeri ef við á.
Nánari kynning er á SuperDash.