Í stuttu máli eru til tvær tegundir af gjafakortum. Annars vegna upphæð í formi inneignar eða gjafakort á tiltekna vöru eða þjónustu.
Á gjafakortið er hægt að skrifa nafn gefanda og nafn móttakanda.
Í greiðsluferlinu er hægt að velja hvort gjafakortið sé sótt í verslun eða fengið sent í tölvupósti.
Til að geta notað Gjafakort þarf fyrst að setja upp Template sem starfsfólk Kaktus setur upp fyrir þig. Hægt er að hafa nokkur template og hægt að nota fyrir ólíkar árstíðir t.d. með jólaþema eða sumarþema.
Inneign:
Hægt er að kaupa gjafakort í formi inneignar sem notandi getur notað eftir eigin óskum. Þetta gjafakort er í grunninn sett upp með sama hætti og aðrar vörur í vefverslun.
Byrjaðu á því að stofna nýja vöru og gefðu henni nafn t.d. Gjafakort.
Í Producta data velur þú Gift Card, sjá mynd:
Settu inn Default Price, sem er grunnverðið sem notandi getur breitt.
Veldu Email Template.
Þú getur þú sett inn Set Expiry Days, sem er hversu marga daga gjafakortið gildir. (ekki er stuðningur fyrir að velja dagsetningu). Ef þú vilt nánari útfærslu á þessari lausn er besta að heyra í okkur og ræða málin.
Ef þú vilt gefa afslátt af gjafakorti getur þú sett afslátt í efsta reitinn, Sale percentage (%) og skrifar þar t.d. t.d. „20“ sem veitir þá 20% afslátt. Ef þú vilt nánari útfærslu á þessari lausn er besta að heyra í okkur og ræða málin.
Mundu einnig að setja mynd á vöruna og ekki verra að að hafa smá lýsingu og setja vöruna í vörurflokk.
Þegar allt er klárt getur þú birt vöruna (Publish).

Hér er hægt að skoða dæmi: https://www.superstore.kaktus.is/verslun/pakkar/gjafabref
Gjafakort á vöru eða þjónustu
Auðvelt er að bjóða vörur eða þjónustu, sem þú hefur nú þegar til sölu, sem gjafakort. Það eina sem þarf að gera er að haka í „Sell as a Gift Card“ og þá er hægt að kaupa viðkomandi vörur eða þjónustu sem gjafakort. Sjá mynd:

Hér er hægt að skoða dæmi: https://www.superstore.kaktus.is/verslun/bloomers/sclerocactus
Skoða stöðu á inneign á gjafakorti
Hér getur þú skoðað stöðuna á inneigninni: https://www.superstore.kaktus.is/gjafakort