Helsta ástæðan fyrir að nota Wholesale ef þú vilt takmarka aðgengi og sýn einstaka viðskiptavina að ákveðnum vörum, vöruflokkum eða vörumerki.
Skuldunautur
Yfirlitssíða
Hér er hægt að sjá yfirlit yfir sýnileika vara, vörumerkja og vöruflokka fyrir ákveðna skuldunauta.
Ef skuldunautur sem þú vilt skrá vörur fyrir finnst ekki í töflunni, getur það verið vegna þess að viðkomandi hefur ekki skráð sig á síðuna ennþá. Þá er hægt að sýsla við hann með því að smella á „Skrá vörur á nýjan skuldunaut“.
Ef skuldunautur finnst ekki í leitinni, getur það einnig stafað af því að honum var nýlega bætt við í DK. Dagleg keyrsla uppfærir lista yfir skuldunauta á vefnum. Nýlega skráðir skuldunautar í dk geta tekið allt að 24 tíma að birtast í leitinni.

Í flipanum „Skuldunautar“ getur þú auðveldlega sýslað með einstakar vörur með því að smella á „+“ undir Breyta vörum. Auðvelt er að bæta við vöru sem þú getur þú leitað eftir nafni eða vörunúmeri. Einnig auðvelt að taka út vöru.
Vörumerki (Brands)
Hér er yfirlit yfir þín vörumerki og hægt að sýsla með hvort viðkomandi vörumerki sé með takmarkaða sýn til viðskiptavina.

Með því að smella á Breyta kemur upp svona valmynd:

Falið sjálfgefið
Þýðir að þessi flokkur sé falinn hjá öllum viðskiptavinum nema þeim sem eru skráðir á listanum fyrir neðan.
Allir skuldunautar
Þá er flokkurinn opinn fyrir alla.
DK hópar
Hér getur þú tekið hópa beint úr dk

Vöruflokkar (Category)
Hér getur þú opnað fyrir eða lokað á einstaka vöruflokka, með sama hætti og vörumerki.


Vörustaða
Þessi síða er einskonar yfirlits síða fyrir vörur fyrir tiltekinn skuldunaut.
Þetta er hugsað til að staðfesta hvort ákveðin vara er sýnileg eða ekki.
Þú slærð inn nafn eða kennitölu skuldunautar og leita svo eftir vöru sem þú vilt athuga.